Upprunalega frá Ebbu Guðnýju og Oddrúnu (heilsumamman.is)
Innihald fyrir eina 9” pizzu
2 tsk. Fiber husk 1 dl. soðið vatn 2 dl glúteinlaust mjöl (möndlumjöl, hafrahveiti, glúteinlaus mjölblanda) Gott að blanda saman tveimur tegundum, td. 1 dl. möndlumjöl og einn dl. haframjöl. 2 msk. ólífuolía ½ tsk salt 1 msk. Þurrkað oreganó eða villijurtir frá Pottagöldrum. Getur líka notað krydd að eigin vali.
Aðferð:
1. Sjóðið vatn og hrærið saman vatið og huskið.
2. Setjið rest af þurrefnum í skál og blandið saman
3. Bætið huskblöndunni út í skálina og blandið öllu saman.
4. Gott að hnoða aðeins með höndunum, eða setja á sig gúmmihanska. Hnoða þar til þú ert komin með mjúkan bolta.
5.Fletjið út á bökunarpappír.
6. Bakið botninn í ca. 7 mín við 200°(blástur). Snúðu honum svo við og bakaðu í 6-7 mín. í viðbót.
Þá er botninn tilbúinn. Mér finnst best að smyrja hann með rauðu pestói og steikja lauk, sveppi og kúrbít á pönnu og nota sem álegg. Síðan toppa ég með möndluparmesan, kasjúmæjó og jafnvel ferskum ávöxtum eins og jarðaberjum. Ef þú vilt hafa bráðinn ost þá seturðu álegg að eigin vali á pizzuna, toppar með osti og bakar í smá stund í viðbót eða þar til osturinn er bráðnaður.